03apríl
30mars
Kreppan mikla
Efst á Fréttablaðinu í morgun stóð:Velkomin í kreppuna
Er þetta ekki einum of? Við skulum fyrst sjá hvort það verður kreppa áður en við bjóðum landsmenn velkomna í hana - eða það finnst mér.
Með Fréttablaðinu fylgdi líka eitthvað ferðablað, fjallað um alls konar kynlega staði.. Ég er svo með einhverja ferðalagabakteríu, ég iða öll í sætinu við að hugsa til þess að fara eitthvað til útlanda, t.d. Barcelona í spænskuskóla, Valparaísó í Chile, vera túristi í París og New York, versla á Ítalíu (ok versla alls staðar), Aþena, Egyptaland, Peking, þessir staðir heilla mig allir. Verst hvað það er ekki frumlegt að vera með ferðalagabakteríu. Held það sé meiri frumleiki falinn í því að hafa hana ekki.
Ég veit ég er ekki búin að blogga lengi, og ég ætla að hætta að reyna að fá Hrefnu til að blogga - svo þið tryggið aðdáendur verðið bara að bíða þolinmóð þegar ég tek svona pásur=)
Helstu fréttir þessa ársfjórðungs eru líklega að við Óli ákváðum að fara að leigja, fengum íbúð á 4. hæð í Tjarnarlundi. Já ég veit hvað þið eruð að hugsa, 4. hæð? Það var mjög gaman að halda á öllu dótinu upp!
Páskarnir voru fínir - tvö páskaegg og eitt sem á í einhverjum erfiðleikum með að komast til mín... Sunna? Ekki eins og ég þurfi annað samt, Óli borðar ekki súkkulaðið og mér finnst það ekkert svaka svaka gott, svo er ég svo pikkí á nammið að helmingurinn af þessum greyjum á eftir að enda í ruslinu.
Nú er ég að vonast eftir því að komast suður í bráð, er farið að klæja í puttana að komast í IKEA og leika mér aðeins... kaupa alls konar smádót sem virðist mjög mikilvægt í búðinni en þegar heim er komið lendir það í neðstu skúffunni og verður aldrei tekið upp, þið vitið hvernig þetta er.
Hún Magnea er hérna á Akureyri og ætlar að setja neglur á mig á eftir, ég hlakka mjög mikið til og vonast bara til þess að komast í vinnuna með þær:D Það væri súper!
En ég ætla að fara að klæða mig og drífa mig í sunnudagsmat í Valló! Verði mér að góðu!
Kv. Hildur
Með Fréttablaðinu fylgdi líka eitthvað ferðablað, fjallað um alls konar kynlega staði.. Ég er svo með einhverja ferðalagabakteríu, ég iða öll í sætinu við að hugsa til þess að fara eitthvað til útlanda, t.d. Barcelona í spænskuskóla, Valparaísó í Chile, vera túristi í París og New York, versla á Ítalíu (ok versla alls staðar), Aþena, Egyptaland, Peking, þessir staðir heilla mig allir. Verst hvað það er ekki frumlegt að vera með ferðalagabakteríu. Held það sé meiri frumleiki falinn í því að hafa hana ekki.
Ég veit ég er ekki búin að blogga lengi, og ég ætla að hætta að reyna að fá Hrefnu til að blogga - svo þið tryggið aðdáendur verðið bara að bíða þolinmóð þegar ég tek svona pásur=)
Helstu fréttir þessa ársfjórðungs eru líklega að við Óli ákváðum að fara að leigja, fengum íbúð á 4. hæð í Tjarnarlundi. Já ég veit hvað þið eruð að hugsa, 4. hæð? Það var mjög gaman að halda á öllu dótinu upp!
Páskarnir voru fínir - tvö páskaegg og eitt sem á í einhverjum erfiðleikum með að komast til mín... Sunna? Ekki eins og ég þurfi annað samt, Óli borðar ekki súkkulaðið og mér finnst það ekkert svaka svaka gott, svo er ég svo pikkí á nammið að helmingurinn af þessum greyjum á eftir að enda í ruslinu.
Nú er ég að vonast eftir því að komast suður í bráð, er farið að klæja í puttana að komast í IKEA og leika mér aðeins... kaupa alls konar smádót sem virðist mjög mikilvægt í búðinni en þegar heim er komið lendir það í neðstu skúffunni og verður aldrei tekið upp, þið vitið hvernig þetta er.
Hún Magnea er hérna á Akureyri og ætlar að setja neglur á mig á eftir, ég hlakka mjög mikið til og vonast bara til þess að komast í vinnuna með þær:D Það væri súper!
En ég ætla að fara að klæða mig og drífa mig í sunnudagsmat í Valló! Verði mér að góðu!
Kv. Hildur
16febrúar
Ekki seinna vænna að blogga!
Nú er ég orðin alveg bandbrjáluð! Haldiði að ég hafi ekki orðið veik, í annað skipti á jafnmörgum vikum. Frekar sorglegt að byrja í nýjum skóla eftir rúmlega tvöfalt jólafrí og hafa mætt 5 daga af 11. Ójá..Ég gerði persónuleikapróf á Facebook áðan. Þar kom í ljós að lagið mitt væri Yellow með Coldplay, sem ég er nokkuð sátt með, ef tekið er tillit til þess að Yellow er eitt af mínum uppáhaldslögum.
En ég fór að hugsa, ef að það mætti sameina öll þessi próf sem maður hefur tekið á feisbúkk í eitt stórt, hvað myndi koma út? Ég væri líklega: Jafnt skipt sem Chandler Bing (Friends), Samantha Jones (Sex and the City), George O'Malley (Grey's Anatomy), hálfur köttur og hálfur hundur, í stelpuboxer, syngjandi eins og Rihanna, líklegust(/astur?) til þess að koma öðrum til að hlæja með því að segja eitthvað kaldhæðnislegt, horfandi á Con Air og ástfangin(/n?) af "vonda stráks"-týpunni.
Úff! Það er ekki lítið á mann lagt.
Mamma kom í gær að sunnan, sem var voða gaman og hún gaf mér afmælisgjöf. Hárblásara og sléttujárn, sem ég er mjög ánægð með. Á samt enn eftir að fara með það í test-drive, því að það þjónar litlum tilgangi að blása og slétta á mér hárið þegar ég er veik. Jenný litlu finnst alveg jafngaman að toga í það.
Mamma kom með svolítið annað - húmorinn sinn. Sem getur verið óborganlegur, sérlega eftir 5 tíma keyrslu og allan þennan hæðamismun. Þegar við Óli vorum komin inn í rúm eftir að hafa setið og spjallað smá stund við liðið frammi í eldhúsi sagði hann við mig: "Það er eiginlega eins og mamma þín sé stundum á einhverju." Þetta meinti hann að sjálfsögðu eins fallega og hægt var. Mamma nefnilega reytti af sér brandarana um fólkið sem hún afgreiðir í bankanum og sparaði ekki svipbrigðin og alls konar raddbeitingu.
Nóg um mömmu mína.. og allt annað.. held að þetta sé komið gott í eitt blogg - svo þætti mér ekkert skemmtilegra en að þið kommentuðuð svona fyrst ég er svona dugleg!
Kveðja frá Norðurlandinu (Akureyri vann sem sagt í skoðanakönnunnunni)
sjii hvað skoðanakönnunnunni er asnalegt orð
12febrúar
Fróðá
Jæja nú er ég í skólanum.. ég veit að maður á að læra í skólanum en ég er svo þreytt að ég get það ekki. Já, ég veit ég er aumingi, en ég er samt eiginlega búin að gera allt sem ég get, á ekki bækur fyrir stærðfræði og félagsfræði svo að það verður að bíða betri tíma..Ég er í "fagi" sem kallast Fróðá. Það heitir eftir heimavistarherbergi sem var hérna í Gamla skóla, er mér sagt. Fróðá er sem sagt eins og lestími, svo að til dæmis í staðinn fyrir að mæta í 6 stærðfræðitíma á viku mætum við í þrjá þar sem við glósum bara og kennarinn fer yfir efnið með okkur, en í Fróðá gerum við öll dæmi og verkefni. Þetta gildir fyrir öll fögin nema íslensku, en við megum nota þennan tíma í hvað sem við viljum eða þurfum.. þ.e.a.s. innan skólamarka:) Mér finnst þetta alveg ágætisfyrirkomulag, en þetta ýtir líka undir að við berum sjálf ábyrgð á náminu. Við getum þess vegna komist upp með að gera ekki neitt, eins og ég er að gera núna..:/
En jæja helst í fréttum er að ég var veik í síðustu viku, mætti einn dag í skólann og var svo veik í fjóra, ekki mjög sniðugt. Það hlaut samt að koma að því að ég fengi einhverja pest af því að Óli er búinn að vera meira og minna veikur allan janúar.
Þessi bölvuðu veikindi okkar stoppuðu okkur samt ekki í að fara á þorrablót í sveitinni=) Það var rosa gaman en við fórum nú samt bæði snemma heim. Leiðinlegast var samt að það kom enginn að sunnan, mamma eða systur hennar, sem hefur bara aldrei gerst svo ég viti. Leiðindaveður.
Í kvöld fer ég að vinna, við Óli erum bara með einn bíl núna svo að við erum alltaf samferða, greyið hann þarf að vakna klukkan 7-hálfátta með mér til að ég komist í skólann. Vona að einhver skemmtilegur geti skutlað mér niðrá Greifann eftir skóla, ég þarf að fara heim og ná í vinnufötin mín og Óli er með bílinn..
Hahah fyndnast í heiminum.. við megum að sjálfsögðu ekki vera að gera neitt annað en að læra í tölvunum, svo er ein gömul tjélla hérna að fylgjast með okkur (ein af kennurunum) og hún byrjaði á því um leið og hún kom að labba inn í hverja röð hjá öllum og skoða hvað allir eru að gera.. og þeir sem eru með tölvur fengu sérstaka athygli.. Ég sit líka upp við vegg og er með tölvuna snúna að veggnum, en það stoppaði hana ekki heldur labbaði hún alveg útí horn til að sjá á skjáinn og stóð lengi og skoðaði.
Jenný Lilja hennar Ólafar systur var Eyfirðingur númer 1000:D Gaman að systir mín leggur sitt af mörkum til sveitarinnar;)
Heyrðu nú er ég hætt! Ég ætla að reyna að gera eitthvað af viti svona síðasta hálftímann. Svo væri voða voða gaman að fá komment frá ykkur gott fólk!
Geðveikislegar stuðkveðjur úr G22
23janúar
Heath Ledger dáinn...:o
http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/01/22/heath_ledger_latinn/Ég var svo sjokkeruð þegar Óli sýndi mér þetta í gærkvöldi að ég þurfti að stoppa Friends og lesa fréttina þrisvar sinnum yfir til að átta mig almennilega á þessu.. Æji þetta er eitthvað svo ótrúlegt.
Já, ég er mætt aftur í bloggið og það eina sem ég hef að segja um þetta tímabil engra blogga er..
(ég gúgglaði "afsakið hlé" og vildi fá, þið vitið, úr sjónvarpinu... en ok)
Helst í fréttum þessa dagana er að ég flutti norður. Hætti í Versló og fékk að fara í MA, indælt fólk þar sem hleypti mér í skólann sinn.. ég verð sem sagt í 2F - droppa niður um tvo bekki úr 4J. haha.
Nú má enginn vera reiður eða sár og hugsa "pfff af hverju sagði hún mér þetta ekki" því að ég bara vissi þetta ekki sjálf fyrr en rétt eftir áramótin (vissi = ákvað) og vildi þá ekki segja fólki fyrr en það væri pottþétt að ég kæmist í skóla hérna norðan heiða=)
Þannig að það má segja að ég hafi fengið tvöfalt jólafrí og rúmlega það, því að núna er MA rétt að klára prófin sín á haustönn og ég sit heima, búin að horfa á allar Grey's Anatomy seríurnar og þrjár af Friends. Einnig er ég búin að passa frænkur mínar öðru hverju og klappa Óla þegar hann kemur heim úr vinnunni.
Rétt eftir áramótin fórum við Óli líka suður til að pakka dótinu mínu og ná í bílinn minn.
Ég er búin að vinna heilar þrjár vaktir á Greifanum og mér finnst met að það vanti ekki oftar þjón..:(
Hmm. Annars man ég ekki eftir neinu sem er þess virði að blogga um.. þannig að við segjum þetta gott í bili.. vona að þið kommentið þó það sé langt síðan síðast!
06desember
Próf... ugh
Eins og helmingur allra landsmanna er ég í prófatörn núna.. búin með meira en helming reyndar, þannig að ég get tæknilega séð ekki kvartað! Var sjúklega sátt þegar ég komst að því að ég hafði náð símati í spænsku með 8 og þarf ekki að taka prófið:DFyrir ykkur sem hafið áhuga á að vita hvernig mér gengur.. bara ágætlega. Búin með sögu, dönsku og íslensku og bæði mér og ykkur til mikillar ánægju get ég fullvissað ykkur um að fall í einhverju af ofangreindum fögum kæmi mér veeeerulega á óvart. Gott mál..
Þá er bara franska og þjóðhagfræði eftir.. "bara" segi ég.. þjóðhagfræði er fag dauðans og djöfulsins. Ef ég hélt einhvern tímann að ég gæti aldrei hatað eitthvað jafn mikið og stærðfræði, þá hafði ég rangt fyrir mér. En ég fæ heilan extra dag til að læra fyrir það, af því ég sleppi spænskuprófinu á þriðjudag.
Síðustu helgi var ég rosalega ábyrg og sniðug og skellti mér norður.. það gekk nú ekki auðveldlega fyrir sig, skal ég segja þér. Sonja og Atli ætluðu norður og ætluðu að vera svo góð að leyfa mér að fá far;) En nei nei kemur ekki þetta óhræsis veður og þau hætta snarlega við að fara.. ekki svo snarlega samt, eftir miklar pælingar og vangaveltur. Allt flug lá líka niðri svo að ég endaði með því að fara á laugardegi og koma aftur sunnudagskvöld. Og að sjálfsögðu gerði ég ekkert annað en að læra fyrir norðan...?=)
Þessi helgi virðist stefna í eitthvað álíka ábyrgðarleysi því að Óli er líklega að koma á morgun.. ;) Sem er samt náttúrulega gott mál:D hehe..
Jæja.. ég held ég hafi engar gáfulegar pælingar þessa dagana eins og í síðasta bloggi.. en ég get fullvissað ykkur um að flugið, bæði norður og suður, var fínt! Einnig hef ég alltaf náð stæði við Verzló síðustu daga og ekkert ruglast, held að alzheimer-light einkennunum sé að fækka hjá mér.
bleee... Hildur
20nóvember
The hills are alive...!
Jæja já ekki nema nokkrir dagar síðan ég bloggaði og ég er mætt aftur! Þetta er hreint út sagt svaðalegt..Byrjum á fréttatilkynningu:
ÞAÐ ER MEGAVIKA Á DOMINO'S!!! FÓLKI ER SÉRSTAKLEGA BENT Á AÐ FARA UPP Í SPÖNG ÞAR SEM VINUR ALLRA LANDSMANNA, NÆR OG FJÆR, SVANDÍS, ER AÐ VINNA. HÚN TEKUR VEL Á MÓTI YKKUR=)
Ég fór norður um helgina.. enn ein letihelgi à la Hildur og Óli..;) haha.. Óli er svo að koma hingað í kvöld - þá er það bara barningurinn að vakna og koma sér í skólann þegar hann getur sofið út!
Þegar ég kom heim úr skólanum kveikti ég á sjónvarpinu og ákvað að gefa America's Got Talent einn sjéns (meira af því að ég nennti ekki að læra heldur en nokkuð annað). Sem var allt í lagi, nokkrir góðir söngvarar, írskir (?) tappdansarar og fólk sem skipti um föt geggjað hratt (veit ekki hvað það heitir, hljómar asnalega en er reyndar geggjað töff). En flottast var 11 ára stelpa sem söng eins og hún væri.. tjah - meira svona a.m.k. 21. Það var geggjað flott.
Mig langaði samt að nefna hérna eitt með innanlandsflug. Nánast allir sem ég þekki (og hafa flogið á milli áfangastaða innanlands) kvarta yfir því. Sem ég skil ekki því að ég hef nú flogið nooookkuð oft á milli Ak og Rvk og hef aldrei lent í slæmu flugi. Jújú, stundum er smá ókyrrð þegar vélin er að lækka sig eða eitthvað, en aldrei svo slæmt að ég hafi verið gráti nær.. eins og ónefnd manneskja sagðist einu sinni hafa verið eftir svoleiðis flug. Svo eru það þeir sem lenda í sæti við hliðina á einhverjum illa lyktandi, feitum eða leiðinlegum á annan hátt. Það versta sem ég hef lent í er að konan við hliðina á mér vildi alltaf vera að kíkja út um gluggan - og ég var í gluggasæti.
Ég held ég hafi komist að niðurstöðu í þessu máli, af hverju mér finnst flug ekkert slæmt:
Ég er bara svo ógeðslega hörð.
Svo var það annað sem Magnea Dröfn minntist á í blogginu sínu um daginn.. hún og pabbi hennar sátu inni í bílnum sínum fyrir utan Kringluna og fylgdust með fólki.. hlógu að því og svoleiðis..;) Sérstaklega tóku þau eftir fólkinu sem snerist í kringum sjálft sig með skottið á milli lappana ýtandi á aflæsarann á bíllyklinum sínum í gríð og erg af því að það mundi hreinlega ekki hvar það lagði. Þessi illkvittnislega frásögn hennar Magneu snerti við mér af því að ég er svo innilega ein af þessu fólki. Eins og þið vitið kannski er ég í Versló. Það er bílastæði fyrir nemendur skólans bakvið hann.. en það er bara ekki nærri því nógu stórt fyrir alla sem koma á bíl (plús það að fólk úr HR gerir mikið í því að stela stæðum hjá okkur;p). Þess vegna leggur stór hluti nemenda við Kringluna.. og ég held ég geti ekki talið skiptin sem ég hef hreinlega ekki munað hvorum megin ég lagði eiginlega.. stundum labba ég meira að segja út í Kringlu af því ég er alveg viss um að hafa lagt þar, en fatta svo þegar ég er komin að stæðinu að ég lagði þar í gær. Í dag hins vegar náði ég stæði alveg við innganginn.
Nóg í bili - Fanney er að koma að trufla mig við lærdóminn..
Hildur pildur
p.s. vil líka benda ykkur á könnunina hérna til hægri, gætuð haft áhrif á mig;) hehe
14nóvember
Mr. Woodcock..?
Sæl veriði;)Ákvað nú að blogga, svona í tilefni af því að.. það er 14. nóv..? Mhmm ok flott.
Síðan ég bloggaði síðast hefur ýmislegt gerst, ég er búin að fara allavega einu sinni norður og er að fara aftur núna um helgina, Óli kom svo þriðjudagsnóttina eftir að ég kom heim síðast og var í tvo daga:) Það var sjúklega næs, nema hvað ég mæli ekki með því að fá sér neitt annað en pizzur á Hróa Hetti. Eeekki alveg klassamatur þar verð ég að segja. Góðar pizzur samt=)
Já annars var ég að vinna síðustu helgi.. orðið miklu meira að gera núna eftir að Farsímalagerinn kom inn í búðina líka. Sem er svo sem ágætt, tíminn líður hraðar!
Svo er ég líka byrjuð að passa litla stelpu sem heitir Vera tvisvar í viku, næ í hana á leikskólann. Hef ekki passað börn svakalega lengi en það er frekar auðvelt að skemmta henni svo það er ekki mikið mál. Henni finnst til dæmis ofboðslega skemmtilegt að hella úr kubbakassanum sínum og tína kubbana aftur ofan í..
Við Fanney skelltum okkur á Mr. Woodcock í Háskólabíó áðan, get ekki sagt að það hafi verið 900 króna virði:/ En svo sem ágæt afþreying;)
Svo fara jólaprófin að byrja.. erum einmitt að klára seinni törnina af kaflaprófum núna á föstudaginn, þjóðhagfræði! Ekki mín sterkasta hérna.. Kvíði eiginlega pínu fyrir, en það er líka eina prófið sem ég hef áhyggjur af þegar jólaprófin byrja.
Við áttum að lesa Óvinafagnað eftir Einar Kárason fyrir daginn í dag, sem ég auðvitað gerði. Ég hef aldrei áður lesið svona uppsetta bók, en hann lét kaflana heita eftir því hvaða persóna sagði frá. Sem sagt í köflum sem hétu Þórður sagði Þórður kakali frá sínu sjónarhorni. Mér fannst þetta mjög sniðugt því að þannig kynntist maður persónunum betur og var ekki bundinn við sjónarhorn einnar persónu. Fær alveg fjóra og hálfa stjörnu frá mér sko..:)
Nóg af rugli í bili frá mér..
Hildur
24október
Komin heim frá London:(
En já ég er komin heim sem er glatað, þetta er svo æðislegur bær og ekki verr að Snorri minn sé þar ;) En já við gerðum samt mest lítið nema að hanga heima og kúra:DFórum samt einn dag til London en þar sem ég átti engann pening versluðum við ekki neitt en við skoðuðum allt, vorum svaka menningarleg og skoðuðum Buckinghampalace, Big Ben og fórum meira sinna í London eye, hann var svo góður að bjóða mér í það.. og það var gegt cool, fórum um kvöldið þannig við sáum borgina alla upplýsta.
Svo djömmuðum við og fórum inná einhverja staði og þarna eru allir staðirnir eins og Sólon, bara þannig tónlist og svona.. En já ég kynntist líka fullt af liði þarna sem var mjög skemmtilegt þannig eg get ekki beðið eftir að fara aftur út til hans :D
En já það er brjálað að gera hjá mér núna alltaf..! Var beðin um að vera aðstoðarleikstjóri í litla leikritinu í versló þannig eg er alltaf uppí skóla frá 8um morguninn til langt fram á kvöld nema að ég þurfi að vinna og þá fer ég beint þangað og vinn til miðnættis:S
En Það er fríkvöld hjá mér í kvöld, það er bara æfing til svona 7 eða 8 og þá ætla ég að hitta Hildi og Lilju elskurnar og við ætlum heim til mín í Buzz og éta nammi hehe:d svaka stuð!!
En jæja ætla að fara drífa mig á æfingu! Ég set inn nokkrar myndir frá London bráðlega ;);)
23október
Stronger?
Kanye West er í útvarpinum, aldrei þessu vant..Mmm ég er bara heima að tjilla eitthvað.. Óli smitaði mig heiftarlega af kvefi og hálsbólgu fyrir norðan og ég vaknaði í morgun að drukkna og gat ekki talað svo að ég ákvað að vera einn dag heima..
En já nú erum við Hrefna báðar komnar heim, vetrarfríið búið og bara ves;) heh..
Ég er viss um að þið bíðið spennt eftir ferðasögu en ég held að ég hafi sjaldan verið jafn dugleg að liggja í leti og þessa fjóra daga sem ég var á ak=) Sem var voða kósý;)
Við amma Mögg og Kittý fórum lögðum sem sagt af stað um þrjú á miðvikudaginn og það gekk bara voða vel, vorum komnar um hálfátta heim á Hrafnagil=) Við Kittý ákváðum að okkur langaði í pizzu og hvar annars staðar er hægt að panta pizzu þegar maður er á annað borð á Akureyri heldur en á Greifanum? Kittý gisti svo hjá mér og ég skutlaði henni á flugvöllinn morguninn eftir, hún fór til Vopnafjarðar að hitta kæró:)
Á sunnudaginn kom hún Kristín Hulda aftur inn á Ak og við brunuðum suður, með rigningu í andlitinu alla leiðina! Skemmst frá því að segja að leikurinn hugsaðu-þér-fræga-persónu stytti okkur stundirnar líklega frá Varmahlíð að Borgarnesi.. og þar fóru um það bil tveir tímar fyrir Kittý að giska á Johnny Depp?! Algjör lúði gellan. Við fengum okkur samt ostabrauðstangir (frá Greifanum að sjálfsögðu) í nesti þannig að þetta var allt í lagi..
Annars er helst í fréttum að það eru komnir flóttamenn í bekkinn okkar.. Þrír krakkar frá Kólumbíu sem tala ENGA ensku og eru nánast bara í tungumálafögum með okkur.. híhí það á eftir að ganga vel, miðað við frönskutímann í gær. Hvernig segiru annars ábendingafornöfn á spænsku? Og þýðir það svo á frönsku fyrir þau, sem hafa aldrei lært hana? Mhmm þetta verður skrautlegt.
Annað sem er helst í fréttum er að Fanney er farin að keyra í Reykjavík?! Hehe og gengur bara vel, hún þarf bara aðeins að villast til að fara að rata eitthvað!
En jæja ég segi fyrir mig að ég hlakka bara til að Hrefna gefi sér fimm til að drita einhverju á þessa síðu, hún er eitthvað voða bissý þessa dagana víst.
Kveðja frá the smoky bay

